Hoppa yfir valmynd
video thumbnail

Alþjóðabankinn og uppbygging í Úkraínu – vinnustofa fyrir atvinnulífið

Alþjóðabankinn í samstarfi við efnahagsráðuneyti Úkraínu, þ.e. deild opinberra innkaupa og samkeppnismála, standa fyrir hálfs-dags vinnustofu (e. Business Outreach Workshop) yfir vefinn miðvikudaginn 7. júní nk. á milli kl. 7:00 og kl. 10:30 að íslenskum tíma.

 Markmiðið með vinnustofunni er gera atvinnulífinu kleift að búa sig undir að taka virkan þátt enduruppbyggingu í Úkraínu þegar fram líða stundir. Ljóst er að mikillar enduruppbyggingar samfélags og innviða í landinu mun verða þörf þegar stríðinu þar lýkur. Samkvæmt nýlegu mati Alþjóðabankans nemur kostnaður við fyrrnefnda þætti nú þegar um 411 milljörðum dala - þegar rétt ríflega ár er liðið frá innrás Rússlands (sjá frétt). Sem dæmi hefur Ísland þegar skuldbundið sig til að leggja um 500 milljónir í sjóðinn URTF í gegnum Alþjóðabankann – en sá sjóður styður við enduruppbyggingu innviða, meðal annars í orkumálum og heilbrigðiskerfi Úkraínu.

Nánar um dagskrá:

  • Kynning á Alþjóðabankanum, Úkraínu og starfsemi bankans þar í landi
  • Um alþjóðabankasjóðinn Ukraine Reconstruction Trust Fund (URTF)
  • Innkaupa- og verklagsreglur Úkraínu og Alþjóðabankans
  • Hagnýt ráð við gerð tilboða og tillagna til árangurs
  • Fyrirkomulag við meðhöndlun hvartana þátttakenda í útboðum
  • Áskorun til atvinnulífsins við ríkjandi aðstæður í Úkraínu

Skráning og frekari upplýsingar veitir Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir (gunnhildur@islandsstofa.is) verkefnastjóri Heimstorgsins.

Lönd / Heimsálfa

AlþjóðabankinnÚkraínaVinnustofa

Dagsetning

7. júní 2023