Hoppa yfir valmynd
video thumbnail

Kynningarfundur á Nefco - The Nordic Green Bank

FJÁRMÖGNUN GRÆNNA VERKEFNA

KYNNINGARFUNDUR Á NEFCO - THE NORDIC GREEN BANK

Miðvikudaginn 11. maí nk. fer fram kynningarfundur á Nefco – The Nordic Green Bank,  í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.

Nefco veitir meðal annars styrki og fjármagn til verkefna sem tengjast umhverfisvænni tækni og grænum lausnum. Á fundinum verður hlutverk og starfsemi fjármálastofnunarinnar kynnt auk þess sem tvö íslensk fyrirtæki segja frá verkefnum og reynslu af samstarfi við hana.

Framsögumenn á fundinum verða:

·        Þórhallur Þorsteinsson, Nefco

·        Søren Rasmussen, Nefco

·        Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, Brunnur Ventures

·        Guðmundur Sigþórsson, D-tech ehf.

Fundarstjórn: Birta Kristín Helgadóttir, Grænvangi

Þórhallur og Søren verða jafnframt til viðtals eftir fundinn fyrir þá sem vilja ræða einstök verkefni eða verkefnahugmyndir.

Húsið opnar kl. 8:45 en fundurinn hefst stundvíslega kl. 9:00. Sjá einnig auglýsingu fundarins hér. Að fundinum standa; Nefco, Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins og Grænvangur. Frekari upplýsingar veitir Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimstorgs Íslandsstofu (gunnhildur@islandsstofa.is).

SKRÁNING Á FUNDINN

Lönd / Heimsálfa

NEFCOUtan NorðurlandaFjármögnun

Dagsetning

11. maí 2022

Kostnaður

ISK 0