FJÁRMÖGNUN GRÆNNA VERKEFNA
KYNNINGARFUNDUR Á NEFCO - THE NORDIC GREEN BANK
Miðvikudaginn 11. maí nk. fer fram kynningarfundur á Nefco – The Nordic Green Bank, í Húsi atvinnulífsins, Borgartúni 35, 105 Reykjavík.
Nefco veitir meðal annars styrki og fjármagn til verkefna sem tengjast umhverfisvænni tækni og grænum lausnum. Á fundinum verður hlutverk og starfsemi fjármálastofnunarinnar kynnt auk þess sem tvö íslensk fyrirtæki segja frá verkefnum og reynslu af samstarfi við hana.
Framsögumenn á fundinum verða:
· Þórhallur Þorsteinsson, Nefco
· Søren Rasmussen, Nefco
· Margrét Ormslev Ásgeirsdóttir, Brunnur Ventures
· Guðmundur Sigþórsson, D-tech ehf.
Fundarstjórn: Birta Kristín Helgadóttir, Grænvangi
Þórhallur og Søren verða jafnframt til viðtals eftir fundinn fyrir þá sem vilja ræða einstök verkefni eða verkefnahugmyndir.
Húsið opnar kl. 8:45 en fundurinn hefst stundvíslega kl. 9:00. Sjá einnig auglýsingu fundarins hér. Að fundinum standa; Nefco, Íslandsstofa, Samtök iðnaðarins og Grænvangur. Frekari upplýsingar veitir Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir, verkefnisstjóri Heimstorgs Íslandsstofu (gunnhildur@islandsstofa.is).
SKRÁNING Á FUNDINN
Lönd / Heimsálfa
NEFCOUtan NorðurlandaFjármögnunDagsetning
11. maí 2022Kostnaður
ISK 0