![video thumbnail](https://images.prismic.io/thjonustubord/57be2f0c-bd3d-47f8-9545-9a916f13c275_26641124124_1e61d94666_c+Cropped.jpg?auto=format&cs=srgb&quality=92&rect=0%2C7%2C640%2C360&w=950)
Viðskiptatækifæri í þróunarlöndum
Utanríkisráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki í Heimsmarkmiðasjóð atvinnulífsins til verkefna í þróunarlöndum.
Umsóknarfrestur er til og með fimmtudeginum 3. febrúar 2022..
Sjóðurinn hentar fyrirtækjum í margvíslegum geirum sem leita viðskiptatækifæra í þróunarlöndum. Þróunarlöndin kalla sjálf eftir samstarfi við atvinnulífið til að þekking og drifkraftur atvinnulífsins nýtist þeim til framþróunar. Þegar styrkhæfni verkefna er metin er sérstaklega horft til áhrifa verkefnanna á sjálfbæra atvinnuþróun í þróunarlandinu, jákvæð umhverfisáhrif, mannréttindi og aukna atvinnuþátttöku kvenna.
Verkefni þarf að framkvæma í samvinnu við samstarfsaðila í þróunarlandi. Styrkurinn getur hæst orðið EUR 200.000 (ca. 26 milljónir ISK) á þremur árum og getur mest orðið 50% af heildarkostnaði verkefnis..
Nánari upplýsingar um sjóðinn er að finna hér á Heimstorginu og einnig á heimasíðu sjóðsins hjá Utanríkisráðuneytinu.
Nánari upplýsingar um styrkveitinguna núna veitir Auður Edda Jökulsdóttir hjá ráðuneytinu og Gunnhildur Ásta Guðmundsdóttir hjá Íslandsstofu.
* Mynd: World Bank Photo Collection
Lönd / Heimsálfa
ÞróunarlöndTækifæri
Styrkur