![Male mechanical engineer with sustainable agricultural robot in field](https://images.prismic.io/thjonustubord/04b01a51-3f90-4a56-acda-6afd95389df3_thisisengineering-raeng-WD7BoqPrjYE-unsplash.jpg?auto=format&cs=srgb&quality=92&rect=0%2C282%2C5472%2C3082&w=950)
Male mechanical engineer with sustainable agricultural robot in field - ThisisEngineering RAEng
Tækniþróunarsjóður er opinn
Opnað hefur verið fyrir umsóknir í Tækniþróunarsjóð og er umsóknarfrestur til kl. 15:00 fimmtudaginn 15. september 2022.
Sjóðurinn veitir styrki allt að fjárhæð 70 milljónir til tækni og nýsköpunarverkefna. Sjóðurinn veitir styrki til verkefna í hvaða landi sem er.
Hlutverk sjóðsins er að styðja þróunarstarf og rannsóknir á sviði tækniþróunar sem miða að nýsköpun í íslensku atvinnulífi. Sjóðurinn býður upp á fjóra flokka fyrirtækjastyrkja; Sprota, Vöxt, Sprett og Markaðsstyrk auk þess sem ávallt er opið fyrir umsóknir um Fræ og Þróunarfræ-styrkina. Hver styrkur er sniðinn að mismunandi þróunarstigi verkefna og stærð fyrirtækja. Sjá nánar umfjöllun um sjóðinn hér á Heimstorginu.
Tengiliður sjóðsins er Lýður Skúli Erlendsson, sérfræðingur hjá Rannís. Nánari upplýsingar má finna á heimasíðu sjóðsins hjá Rannís.
Lönd / Heimsálfa
Öll löndTækifæri
Styrkur